Verið velkomin á heimasíðuna mína Helma.is. Málverkin mín eru jafn misjöfn og þau eru mörg og eru ýmist unnin með olíu, kolum, akríl eða vatnslitum. Í felstum verkunum mínum nota ég grunn sem að gerir myndirnar grófar sem ég er þekktust fyrir. Sú áferð bætir bæði dýpt og vídd við verkin. Allt efni á þessari síðu er höfundarréttarvarið samkvæmt lögum um höfundarétt og má með engu móti nota það án leyfis höfundar. Höfundaréttur er ekki yfirfærður þegar verkin eru versluð, rétturinn er alltaf varðveittur af listamanninum. Framleiðsla af upphaflegum verkum er óheimiluð. Ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt fá frekari upplýsingar um tiltekið verk skaltu endilega hafa samband.